    <language>is</language>
Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar
    <link>https://skoli.hvalfjardarsveit.is</link>
Viðurkenning fyrir framúrskarandi starf í læsiskennslu
Mikil ánægja ríkir í Heiðarskóla með að Þórdís Þórisdóttir, sérkennari við skólann, hlaut þann 11. september viðurkenningu úr minningarsjóði Rósu Eggertsdóttur fyrir framúrskarandi starf í læsiskennslu.
Viðurkenningin var afhent á Námstefnu í Byrjendalæsi við Háskólann á Akureyri og er þetta í fyrsta sinn sem verðlaunin eru veitt. Markmið þeirra er að heiðra kennara og leiðtoga sem hafa skarað fram úr í þágu læsismenntunar og vekja athygli á góðum starfsháttum sem styrkja læsi og námsárangur nemenda.
Verðlaunin eru veitt í minningu Rósu Eggertsdóttur, fræðikonu og frumkvöðuls á sviði læsiskennslu, sem þróaði aðferðina Byrjendalæsi. Sú aðferð hefur haft mikil áhrif á íslenskt skólastarf og náð til fjölda kennara og nemenda um allt land.
Við mat á tilnefningum er meðal annars horft til fagþekkingar, árangursríkrar kennslu, nýbreytni, námsaðlögunar, samstarfs og framlags til skólasamfélagsins. Viðurkenningin er því mikil heiðursviðurkenning fyrir þann metnað og faglega starfsemi sem einkennir starf Þórdísar Þórisdóttur.
Starfsfólk og nemendur Heiðarskóla óska Þórdísi innilega til hamingju með þessa verðskulduðu viðurkenningu og þakka henni fyrir ómetanlegt framlag til læsis og velferðar nemenda skólans.]]></description>
Góð kartöfluuppskera hjá nemendum í Heiðarskóla
Nemendur í Heiðarskóla taka ár hvert upp kartöflur. Í ár voru það nemendur á yngsta stigi sem tóku upp kartöflurnar með aðstoð starfsmanna skólans.
Uppskeran reyndist afar góð og verða kartöflurnar nýttar í mötuneyti skólans. Þar verða þær eldaðar o...]]></description>
Heiðarskóli tók þátt í Treyjudeginum 4. september
Öll í sama liðiTreyjudagurinn var haldinn í fyrsta sinn á Íslandi í ár. Að deginum stendur styrktarfélagið Börn með krabbamein og er markmiðið einfalt en mikilvægt: Að einstaklingar, vinnustaðir, skólar og íþróttafélög klæðist sinni uppáhaldstreyju o...]]></description>
Frístund byrjar 25. ágúst kl. 13:30 og á sama tíma keyrir tómstundarútan á Akranes 
Skólasetning Heiðarskóla
Laus staða leikskólakennara / leiðbeinanda fyrir haustið 
Leikskólinn Skýjaborg auglýsir eftir leikskólakennara / leiðbeinanda til starfa frá hausti 2026.]]></description>
Nýr skólastjóri tekur til starfa
Í dag, 1. ágúst, tók Anna Margrét Tómasdóttir formlega við stöðu skólastjóra Heiðarskóla. Fyrr í sumar afhenti Sigríður Lára Guðmundsdóttir, fráfarandi skólastjóri Önnu Margréti skólastjóralyklana eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.
Sigríður hóf stö...]]></description>
Sumarkveðja frá Heiðarskóla
Heiðarskóli verður lokaður vegna sumarleyfa frá og með 25. júní. Skólinn opnar aftur þriðjudaginn 4. ágúst.
Við þökkum nemendum, foreldrum og starfsfólki fyrir gott samstarf á skólaárinu og hlökkum til að taka aftur á móti ykkur eftir sumarfrí.
Við...]]></description>
SumarGaman í júní
SumarGaman Hvalfjarðarsveitar fyrir börn í 1. – 4. bekk Heiðarskóla hefur aldeilis gengið vel. Góð þáttaka er í SumarGaman en 21 barn er skráð nú í júní. Börnin hafa mest megnis verið í Álfholtsskógi og við fengið að nýta aðstöðuna í Furuhlíð. Færum ...]]></description>
Laus staða umsjónarkennara á yngsta stigi
Heiðarskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennara sem er reiðubúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra.
Um er að ræða:
100% stöðu umsjónarkennara á yngsta stigi. Ráðningin er tímabundi...]]></description>
Fréttabréf Skýjaborg febrúar-maí 2026
Í þessu fréttabréfi förum við yfir ýmislegt sem við í Skýjaborg höfum gert síðustu mánuði frá síðasta fréttabréfi eða frá febrúar og út maí 2026. 
Fréttabréf Skýjaborg: Febrúar-maí 2026]]></description>
Útskrift - 10. bekkur
Í dag voru útskrifuð úr Heiðarskóla þau Alexander Solovei, Díana Ingileif Ottesen, Freyja Kolfinna Elmarsdóttir, Jasmín Rán Salómonsdóttir, Jónas Helgi Magnússon, Katrín Rós Birgisdóttir, Margrét Lára Arnfinnsdóttir, Maron Logi Brynjólfsson, Ólöf Íva...]]></description>
Vorhátíð Foreldrafélagsins og Heiðarskóla
Vorhátíð Foreldrafélagsins og Heiðarskóla var haldin í gær. Nemendur fengu afhentan vitnisburð vetrarins. Eftir afhendingu var boðið upp á grillaðar pylsur, frostpinna, candy floss og hoppukastala. Vegna mikillar úrkomu fór hátaíðin meira og minna fr...]]></description>
Vorferð miðstigs í Siglunes
Miðvikudaginn 3. júní fór miðstigið í skemmtilega ferð í Siglunes. Ferðin var í boði Önnu Guðrúnar, stuðningsfulltrúa á miðstigi, sem skipulagði heimsóknina af miklum myndarskap. Skólinn lagði til rútuferðina.
Við komuna tók á móti okkur frábær hópu...]]></description>
Töltkeppni Heiðarskóla
Töltkeppni Heiðarskóla fór fram í dag í blíðskaparverði á íþróttadegi Heiðarskóla. Fimm knapar tóku þátt. Það voru þau Guðrún Agnes í 1. bekk, Reynir Snær í 5. bekk, Gunnjóna og Hafsteinn í 6. bekk og Valey Rún í 7. bekk. Þau stóðu sig öll mjög vel.
Íþróttadagur Heiðarskóla
Í dag fór fram hinn árlegi íþróttadagur Heiðarskóla. Keppt var í alls kyns greinum og nemendur fengu að spreyta sig eins og þeir vildu og á sínum forsendum. Hver og einn nemandi safnaði stigum bæði fyrir sig og bekkinn sinn.
Úrslit voru kynnt í lok ...]]></description>
Skýjaborg auglýsir eftir deildarstjóra 
Leikskólinn Skýjaborg óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi. 
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæki íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna. 
Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. 
Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/ 
Helstu verkefni og ábyrgð 
•	Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra.
•	Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni. 
•	Sér um foreldrasamstarf á deildinni. 
•	Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra. 
•	Ath. Önnur deildin er með börn á aldrinum 1-3 ára og hin deildin er með börn á aldrinum 3-6 ára. Deildarstjóri er ekki ráðin við aðra hvora deildina, heldur gæti starfið flust á milli deilda. 
Menntunar- og hæfniskröfur 
•	Leyfisbréf til kennslu*
•	Reynsla af starfi á leikskólastigi 
•	Góð íslenskukunnátta 
•	Góð samskiptahæfni 
•	Góðir skipulagshæfileikar 
•	Góð tölvukunnátta 
*Ef ekki fæst til starfa leikskólakennari (með leyfisbréf til kennslu) verður horft til menntunar og reynslu. 
Hlunnindi í starfi 
•	35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni. 
•	Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.  
•	6 skipulagsdagar á ári. 
Umsóknarfrestur til og með 17. júní 2026. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er staðan laus frá 10. ágúst 2026. 
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir í síma 4338530 / 8925510 eða með því að senda fyrirspurn á eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Launakjör er samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá og leyfisbréfs skilað í gegnum Alfreð eða í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Vorhátíð Foreldrafélagsins og Heiðarskóla
Föstudaginn 5. júní verður vorhátíð Foreldrafélagsins og Heiðarskóla kl. 15:00 - 16:30. Nemendur í 1. - 9. bekk mæta í heimastofur og  taka á móti vitnisburði vetrarins. Að því loknu hlaupum við út í sumarið. Boðið verður upp á pylsur, candy flo...]]></description>
Útskrift og vorhátíð 
Það var hátíðardagur í gær þegar við útskrifuðum sjö börn héðan úr Skýjaborg sem munu byrja í grunnskóla í haust. Athöfnin var vel heppnuð. Börnin opnuðu hátíðina með söngatriði en börnin völdu að syngja saman lagið Sá ég spóa. Leikskólastjóri hélt tölu, börnin voru með annað tónlistaratriði, deildarstjóri hélt tölu og börnin fengu útskriftarskírteini og birkitré að gjöf. Kærar þakkir fyrir daginn og innilega til hamingju, kærur útskriftarbörn og fjölskyldur. Við erum stolt af ykkur og óskum ykkur alls hins besta í framtíðinni. 
Eftir athöfnina hófst Vorhátíð Skýjaborgar og foreldrafélagsins með hoppukastölum, pylsum, ís og Leikhópnum Lottu. Vel heppnuð hátíð þrátt fyrir smá vætu. Kærar þakkir fyrir komuna og samveruna. 