    <language>is</language>
Skýjaborg | Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar
    <link>https://skoli.hvalfjardarsveit.is</link>
Fréttabréf Skýjaborg febrúar-maí 2026
Í þessu fréttabréfi förum við yfir ýmislegt sem við í Skýjaborg höfum gert síðustu mánuði frá síðasta fréttabréfi eða frá febrúar og út maí 2026. 
Fréttabréf Skýjaborg: Febrúar-maí 2026]]></description>
Skýjaborg auglýsir eftir deildarstjóra 
Leikskólinn Skýjaborg óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi. 
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæki íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna. 
Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. 
Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/ 
Helstu verkefni og ábyrgð 
•	Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra.
•	Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni. 
•	Sér um foreldrasamstarf á deildinni. 
•	Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra. 
•	Ath. Önnur deildin er með börn á aldrinum 1-3 ára og hin deildin er með börn á aldrinum 3-6 ára. Deildarstjóri er ekki ráðin við aðra hvora deildina, heldur gæti starfið flust á milli deilda. 
Menntunar- og hæfniskröfur 
•	Leyfisbréf til kennslu*
•	Reynsla af starfi á leikskólastigi 
•	Góð íslenskukunnátta 
•	Góð samskiptahæfni 
•	Góðir skipulagshæfileikar 
•	Góð tölvukunnátta 
*Ef ekki fæst til starfa leikskólakennari (með leyfisbréf til kennslu) verður horft til menntunar og reynslu. 
Hlunnindi í starfi 
•	35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni. 
•	Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.  
•	6 skipulagsdagar á ári. 
Umsóknarfrestur til og með 17. júní 2026. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er staðan laus frá 10. ágúst 2026. 
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir í síma 4338530 / 8925510 eða með því að senda fyrirspurn á eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Launakjör er samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá og leyfisbréfs skilað í gegnum Alfreð eða í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Útskrift og vorhátíð 
Það var hátíðardagur í gær þegar við útskrifuðum sjö börn héðan úr Skýjaborg sem munu byrja í grunnskóla í haust. Athöfnin var vel heppnuð. Börnin opnuðu hátíðina með söngatriði en börnin völdu að syngja saman lagið Sá ég spóa. Leikskólastjóri hélt tölu, börnin voru með annað tónlistaratriði, deildarstjóri hélt tölu og börnin fengu útskriftarskírteini og birkitré að gjöf. Kærar þakkir fyrir daginn og innilega til hamingju, kærur útskriftarbörn og fjölskyldur. Við erum stolt af ykkur og óskum ykkur alls hins besta í framtíðinni. 
Eftir athöfnina hófst Vorhátíð Skýjaborgar og foreldrafélagsins með hoppukastölum, pylsum, ís og Leikhópnum Lottu. Vel heppnuð hátíð þrátt fyrir smá vætu. Kærar þakkir fyrir komuna og samveruna. 
Umferðarvika og hjóladagur 
Í síðustu viku var umferðarvika hjá okkur í Skýjaborg. Elsti árgangurinn tók þátt í umferðarskólanum (verkefni frá Samgöngustofu). Í umferðarskólanum er m.a. fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig fara eigi yfir götu og hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti. Þau skoðuðu reiðhjólahjálm og lærðu hvernig á að stilla hann rétt á höfðinu. Í lok fræðslu fengu þau litabók.
Við áttum svo góðan hjóladag á fimmtudaginn í alveg frábæru veðri. Lögreglan kom í heimsókn og var með umferðarfræðslu fyrir börnin úti ásamt reiðhjólaskoðun. Það er alltaf gaman að fá lögregluna í heimsókn og hafa börnin alltaf jafn gaman af því að spjalla við hana.
Við höfum undanfarin ár nýtt okkur stóra bílaplanið fyrir utan Stjórnsýsluhúsið á hjóladaginn til að hafa gott rými til að hjóla en það var verið að mála línurnar þannig að það var ekki hægt að þessu sinni, svo við vorum bara í garðinum okkar og gekk vel.
Diljá fór með elsta árganginn í smá hjólatúr í hverfinu eftir hádegismatinn sem vakti lukku.]]></description>
Útskriftarferð og heimsókn á slökkvistöðina
Í síðustu viku fór útskriftarhópurinn okkar í vel heppnaða útskriftarferð á Akranes. Þau áttu frábærar stundir í Kalmansvík að skoða og leika í fjörunni. Þau sáu meðal annars fullt af lifandi kröbbum og fleiri fjörudýrum. Börnin fengu svo pizzuveislu á Galito. Á leiðinni á slökkvistöðina fengu þau íspinna. Það var svo mikið húllumhæ í heimsókninni til slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Börnin fengu að skoða slökkviliðsbílana, aðstöðuna og prófa búnaðinn. Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur í þessari skemmtilegu heimsókn.]]></description>
Skýjaborg auglýsir eftir leikskólasérkennara / þroskaþjálfa
Leitað er að leikskólasérkennara / þroskaþjálfa í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi. ]]></description>
Listasýning Skýjaborgar 
Listasýning Skýjaborgar hefur verið sett upp í auka-fundarsal Stjórnsýsluhússins. Sýningin verður opin næstu tvær vikurnar. En við hvetjum alla íbúa sérstaklega til að kíkja við á morgun, laugardag, á kjörfundi vegna sveitarstjórnarkosninga. ]]></description>
Sveitaferð að Hvítanesi
Í gær fóru börnin í leikskólanum, 3 ára og eldri, í skemmtilega ferð að Hvítanesi. Farið var með rútu til og frá leikskólanum og ríkti mikil tilhlökkun hjá börnunum.
Bændurnir tóku einstaklega vel á móti okkur. ]]></description>
Dagur umhverfisins
Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegur 25. apríl ár hvert. Við í Skýjaborg létum okkur ekki vanta og fóru Regnbogakrakkarnir galvaskir út að tína rusl síðastliðinn föstudag, þar sem þau hreinsuðu nærumhverfi leikskólans.
Þegar aftur var komið í leikskólann flokkuðu börnin ruslið og hentu því í viðeigandi tunnur. Krakkarnir voru virkilega samviskusamir og áttu góðar umræður um mikilvægi þess að hugsa vel um umhverfið okkar.]]></description>
Leikskólinn Skýjaborg auglýsir eftir leikskólakennurum til starfa frá hausti 2026. 
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi, Hvalfjarðarsveit. Við erum í því spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu ...]]></description>
Rýmingaræfing
Það var rýmingaræfing í Skýjaborg í dag og fóru allir út á sokkunum. Hratt og vel gekk að rýma leikskólann. Börnin stóðu sig ljómandi vel. ]]></description>
Dagur stærðfræðinnar á yngsta stigi
Í dag gerðum við stærðfræði hátt undir höfði í tilefni af degi stærðfræðinnar sem er á morgun. Boðið var upp á stærðfræðistöðvar fyrir 1. -3. bekk þar sem hægt var að læra að búa til gogg, spila ýmis stærðfræðispil, raða tölustöfum og búa til mynstur...]]></description>
Skólanámskrá Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar
Skólanámskrá Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar hefur verið í uppfærslu skólaárin 2023-2026 með tilliti til nýrrar Menntastefnu Hvalfjarðarsveitar, Heimsmarkmiðum sameinuðu þjóðanna, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og áorðnum breytingum á aðalnámskrám. Fyrri hluti skólanámskrár er sameiginlegur fyrir Heiðarskóla og Skýjaborg. Hvort stig fyrir sig gefur svo út seinni hluta.]]></description>
Leikskólinn Skýjaborg auglýsir lausar stöður við sumarafleysingar frá vori 2026 
Óskað er eftir glöðum og jákvæðum leikskólakennurum / starfsfólki í sumarafleysingar í leikskólanum Skýjaborg Hvalfjarðarsveit. Ráðning er annars vegar frá 7. apríl, hins vegar 15. apríl og/eða í maí og fram í miðjan júlí eða út ágúst. Leikskólinn er lokaður 10. júlí til og með 7. ágúst.
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í því spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæka íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.]]></description>
Skóladagatöl 2026-2027
Skóladagatöl Heiðarskóla og Skýjaborgar fyrir næsta skólaár 2026-2027 hafa verið samþykkt og má finna hér. ]]></description>
Konudagskaffi - glitrandi með einstökum börnum 
Á föstudaginn 27. febrúar buðum við í konudagskaffi í leikskólanum. Boðið var upp á kaffi, brauð, kex, salöt, ýmislegt álegg og vínber. Börnin höfðu teiknað fallegar myndir af mömmum sínum og svarað nokkrum spurningum um þær. Myndirnar voru hengdar upp til sýnis og vöktu gleði.]]></description>
Þorrinn í Skýjaborg
Í upphafi þorra, á bóndadaginn, buðum við í bóndadagskaffi í leikskólanum. Boðið var upp á kaffi, brauð, kex, salat, ýmislegt álegg og melónur. Börnin höfðu teiknað mynd af pabba sínum eða afa og svarað nokkrum spurningum um þá sem hengdar voru upp til sýnis. Á sama tíma var landsleikur í handbolta og kveiktum við á honum fyrir þá sem vildu fylgjast með. Sumir settust niður og spjölluðu saman yfir kaffibolla á meðan aðrir fóru í leik með börnunum. Við áttum góða og notalega stund með pöbbum, öfum, systkinum, nokkrum mömmum og ömmum og þökkum við öllum kærlega fyrir komuna.]]></description>
Fréttabréf Skýjaborgar október 2025 - janúar 2026 
Hér koma fréttir frá Skýjaborg mánuðina október 2025 til janúar 2026 í þessu nýjasta Fréttabréfi Skýjaborgar. Vonandi hafið þið gaman af. 
Jólagjöf frá foreldrafélaginu til Skýjaborgar 
Ná á dögunum barst okkur vegleg jólagjöf frá Foreldrafélagi Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar. Leikskólinn fékk lítinn en öflugan skjávarpa sem hægt er að stilla upp hvar sem er og nýtist vel til að skapa skynörvandi umhverfi. Við færum foreldra...]]></description>
Aðventufréttir og jólakveðja frá Skýjaborg 
Það er búinn að vera góð aðventa hjá okkur í Skýjaborg í leik, jólaföndri, útiveru og öðru starfi.
Þann 27. nóvember var okkur boðið á Vinavöll að vera viðstödd þegar jólaljósin voru tendruð á jólatrénu. Í framhaldi bauð starfsfólk skrifstofu börnun...]]></description>