Öskudagur - hæfileikakeppni

Eftir nammiát morgunsins var boðið upp á pylsur í hádegismat - ekki mikill hollustudagur fyrir líkamann en svo sannarlega fyrir andlega heilsu. Eftir hádegismat var haldin hæfileikakeppni þar sem sýnd voru 9 atriði sem voru hvert öðru skemmtilegra. Heiðarskóli þakkar öllum þátttakendum kærlega fyrir þátttökuna.  Á meðfylgjandi mynd má sjá þá þátttakendur sem lentu í 1., 2. og 3. sæti.