Afleysingastarfsmaður

Auglýst er eftir starfsmanni í tilfallandi afleysingastörf í Heiðarskóla. Óskað er eftir starfsmanni sem er tilbúinn að stökkva inn í afleysingu með stuttum fyrirvara og sinna fjölbreyttum störfum s.s. í mötuneyti, við þrif, gæslu og í íþróttahúsi. Um er að ræða tilfallandi tímavinnu samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. Nánari upplýsingar má finna hjá skólastjóra, Sigríði Láru Guðmundsdóttur, í síma 8968158. Einnig má senda fyrirspurn á netfangið sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is.