Útinám og umhverfismennt

Umhverfissáttmáli Heiðarskóla                                        Undirritun sáttmálans

UndirritunUmhverfissáttmáli 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sáttmáli og markmið

Gerðu það sem er rétt fyrir umhverfið - ekki það sem er auðveldast.

Skólinn leggur áherslu á:  

  • Að nemendur læri gildi þess að ganga vel um náttúruna og umhverfið sitt.
  • Að draga úr sóun verðmæta og nýta vel þær auðlindir sem okkur er treyst fyrir.
  • Að endurnýta og endurvinna það sem hægt er.
  • Að auka umhverfisvitund nemenda og starfsfólks.

Markmið og leiðir  

1.   Við ætlum að hafa markvisst útinám: 

  • Á t.d. skólalóð og útinámssvæðinu okkar. 
  • Fara í gönguferðir, vettvangsferðir og kynnast sveitinni okkar og örnefnum.
  • Rækta t.d. kartöflur og planta trjám. 

2. Við ætlum að að spara orku: 

  • Vera með miða á veggjum sem minnir fólk á að slökkva ljósin og á rafmagnstækjum.
  • Hafa rafmagnsmælingu í janúar á hverju ári.
  • Stefnt að því að hafa rafmagnslausan dag á skólaárinu á hverju skólaári. 

3. Draga úr neyslu: 

  • Kaupa minna og endurnýta meira.
  • Endurvinna pappír, plast, málmhluti og matarleifar.
  • Endurvinna gler og ýmis afgangsefni í t.d. listsköðun.  

4.  Halda áfram að fræða nemendur og starfsmenn um umhverfismál: 

  • Fá utanaðkomandi fyrirlesara um umhverfismál.
  • Fylgjast vel með nýjungum í umhverfismálum t.d. bílar, rafmagn, matvörur og fair trade.