Vala leikskólakerfi

Leikskólinn notar umsjónar- og upplýsingakerfið Vala. Í gegnum kerfið geta forráðamenn fylgst með daglegu starfi barnsins og nálgast ýmsar mikilvægar upplýsingar.

Í Völu er meðal annars hægt að skoða viðveruskráningu, máltíðir og svefn, lesa tilkynningar og fréttir frá leikskólanum, senda og taka á móti skilaboðum, skoða myndir af barninu, fylgjast með matseðlum og nálgast atburðardagatal leikskólans.

Með Völu-appinu geta forráðamenn átt einföld og þægileg samskipti við leikskólann varðandi vistun barnsins. Þar er meðal annars hægt að tilkynna forföll og senda skilaboð á starfsfólk.

Við hvetjum forráðamenn til að nýta Völu-appið. Til þess þarf að sækja appið og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum. Appið er gjaldfrjálst og ber heitið Vala leikskóli, og er aðgengilegt í App Store og Play Store.