Erasmus+ Lifandi náttúra - Lífbreytileiki á tækniöld 2018-2020

Haustið 2018 var Skýjaborg boðin þátttaka í Erasmus+ verkefni á vegum Landverndar ásamt leik- og grunnskólum víðsvegar af landinu. Verkefnin tengjast lífbreytileika sem hægt er að útskýra sem líffræðilega fjölbreytni og tekur þannig til fjölbreytileika allra lífverutegunda jarðarinnar, þ.e. plantna, dýra, sveppa og örvera. Á undanförnum árum hefur verið árleg vinna hér í Skýjaborg í kringum ræktun sumarblóma og annarra nytjaplantna ásamt því að útbúa fuglafóður og fóðra smáfugla yfir veturinn. Skólinn var því vel í stakk búin til að vinna verkefnið með Landvernd og þáði boð Landverndar. Tengiliðir verkefnisins voru Sigurbjörg og Eyrún/Guðmunda.

Verkefnið stóð yfir á árunum 2018-2020. Í verkefninu tóku fjöldi leik- og grunnskóla þátt frá Íslandi, Eistlandi, Lettlandi og Slóveníu. Unnið var með lífbreytileika á ýmsan hátt, skólarnir útbjuggu verkefni tengd lífbreytileika og sumir einnig snjalltækjum og svo voru verkefnin prófuð í löndunum fjórum. Tengiliðir leikskólans tóku þátt vinnusmiðjum í júní 2019 hér á Íslandi og þá tókum við meðal annars á móti hópnum hér í Skýjaborg og kynntum leikskólann okkar. Einnig fóru tengiliðir til Slóveníu í október 2019 og tóku þátt í vinnusmiðjum þar. 

Afrakstur verkefnisins er bókin Lifandi náttúra – Lífbreytileiki á tækniöld. Getið þið lesið bókina með því að smella á heiti bókarinnar.