03.06.2026
Leikskólinn Skýjaborg óskar eftir að ráða deildarstjóra í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2026 eða eftir samkomulagi.
Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi í Hvalfjarðarsveit. Við erum í spennandi verkefni að stækka við okkur og erum að opna auka leikrými í færanlegu húsnæði á leikskólalóðinni og með því fjölga börnum. Í Skýjaborg er lögð áhersla á umhverfismennt, útinám, snemmtæki íhlutun í máli og læsi og sjálfsprottinn leik. Skólinn er grænfánaskóli og gildi skólans eru: Vellíðan, virðing, metnaður og samvinna.
Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir.
Heimasíða leikskólans er: https://skoli.hvalfjardarsveit.is/
Helstu verkefni og ábyrgð
• Vinnur með og undir stjórn leikskólastjóra.
• Ber ábyrgð á stjórnun og skipulagningu starfsins á deildinni.
• Sér um foreldrasamstarf á deildinni.
• Vinnur að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
• Ath. Önnur deildin er með börn á aldrinum 1-3 ára og hin deildin er með börn á aldrinum 3-6 ára. Deildarstjóri er ekki ráðin við aðra hvora deildina, heldur gæti starfið flust á milli deilda.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leyfisbréf til kennslu*
• Reynsla af starfi á leikskólastigi
• Góð íslenskukunnátta
• Góð samskiptahæfni
• Góðir skipulagshæfileikar
• Góð tölvukunnátta
*Ef ekki fæst til starfa leikskólakennari (með leyfisbréf til kennslu) verður horft til menntunar og reynslu.
Hlunnindi í starfi
• 35 klst. vinnuvika / 7 klst. vinnudagur. Afleysing er í húsi fyrir styttingunni.
• Opnunartími leikskólans er 7:30-16:30.
• 6 skipulagsdagar á ári.
Umsóknarfrestur til og með 17. júní 2026. Um er að ræða 100% starfshlutfall og er staðan laus frá 10. ágúst 2026.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eyrún Jóna Reynisdóttir í síma 4338530 / 8925510 eða með því að senda fyrirspurn á eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Launakjör er samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um og skal umsókn ásamt starfsferilskrá og leyfisbréfs skilað í gegnum Alfreð eða í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is.
Lesa meira
29.05.2026
Það var hátíðardagur í gær þegar við útskrifuðum sjö börn héðan úr Skýjaborg sem munu byrja í grunnskóla í haust. Athöfnin var vel heppnuð. Börnin opnuðu hátíðina með söngatriði en börnin völdu að syngja saman lagið Sá ég spóa. Leikskólastjóri hélt tölu, börnin voru með annað tónlistaratriði, deildarstjóri hélt tölu og börnin fengu útskriftarskírteini og birkitré að gjöf. Kærar þakkir fyrir daginn og innilega til hamingju, kærur útskriftarbörn og fjölskyldur. Við erum stolt af ykkur og óskum ykkur alls hins besta í framtíðinni.
Eftir athöfnina hófst Vorhátíð Skýjaborgar og foreldrafélagsins með hoppukastölum, pylsum, ís og Leikhópnum Lottu. Vel heppnuð hátíð þrátt fyrir smá vætu. Kærar þakkir fyrir komuna og samveruna.
Lesa meira
29.05.2026
Í síðustu viku var umferðarvika hjá okkur í Skýjaborg. Elsti árgangurinn tók þátt í umferðarskólanum (verkefni frá Samgöngustofu). Í umferðarskólanum er m.a. fjallað um öryggi barna í bílum, hvernig fara eigi yfir götu og hvar öruggast sé að hjóla og leika sér úti. Þau skoðuðu reiðhjólahjálm og lærðu hvernig á að stilla hann rétt á höfðinu. Í lok fræðslu fengu þau litabók.
Við áttum svo góðan hjóladag á fimmtudaginn í alveg frábæru veðri. Lögreglan kom í heimsókn og var með umferðarfræðslu fyrir börnin úti ásamt reiðhjólaskoðun. Það er alltaf gaman að fá lögregluna í heimsókn og hafa börnin alltaf jafn gaman af því að spjalla við hana.
Við höfum undanfarin ár nýtt okkur stóra bílaplanið fyrir utan Stjórnsýsluhúsið á hjóladaginn til að hafa gott rými til að hjóla en það var verið að mála línurnar þannig að það var ekki hægt að þessu sinni, svo við vorum bara í garðinum okkar og gekk vel.
Diljá fór með elsta árganginn í smá hjólatúr í hverfinu eftir hádegismatinn sem vakti lukku.
Lesa meira
29.05.2026
Í síðustu viku fór útskriftarhópurinn okkar í vel heppnaða útskriftarferð á Akranes. Þau áttu frábærar stundir í Kalmansvík að skoða og leika í fjörunni. Þau sáu meðal annars fullt af lifandi kröbbum og fleiri fjörudýrum. Börnin fengu svo pizzuveislu á Galito. Á leiðinni á slökkvistöðina fengu þau íspinna. Það var svo mikið húllumhæ í heimsókninni til slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar. Börnin fengu að skoða slökkviliðsbílana, aðstöðuna og prófa búnaðinn. Við þökkum kærlega fyrir góðar móttökur í þessari skemmtilegu heimsókn.
Lesa meira
18.05.2026
Leitað er að leikskólasérkennara / þroskaþjálfa í 100% ótímabundna stöðu frá 10. ágúst 2025 eða eftir samkomulagi.
Lesa meira
12.05.2026
Í gær fóru börnin í leikskólanum, 3 ára og eldri, í skemmtilega ferð að Hvítanesi. Farið var með rútu til og frá leikskólanum og ríkti mikil tilhlökkun hjá börnunum.
Bændurnir tóku einstaklega vel á móti okkur.
Lesa meira
29.04.2026
Dagur umhverfisins er haldinn hátíðlegur 25. apríl ár hvert. Við í Skýjaborg létum okkur ekki vanta og fóru Regnbogakrakkarnir galvaskir út að tína rusl síðastliðinn föstudag, þar sem þau hreinsuðu nærumhverfi leikskólans.
Þegar aftur var komið í leikskólann flokkuðu börnin ruslið og hentu því í viðeigandi tunnur. Krakkarnir voru virkilega samviskusamir og áttu góðar umræður um mikilvægi þess að hugsa vel um umhverfið okkar.
Lesa meira