Bingó - fatamarkaður - vöfflusala

Undanfarin ár hafa nemendur skólans tekið þátt í góðgerðarverkefninu jól í skókassa.  Umhverfisnefnd skólans ákvað að gera það ekki þetta skólaárið heldur fara í annars konar góðgerðarverkefni. Ákveðið var á fundi nefndarinnar í gær að halda páskabingó og fatamarkað fimmtudaginn 31. mars kl. 18:00. Sjoppan verður opin og hægt að kaupa vöfflur og kaffi. Allur ágóði rennur til hjálparstarfs í Úkraínu. Við seljum bingóspjaldið á 500 kr., vaffla og kaffi á 1000 kr. Enginn posi og því þarf að hafa með sér seðla. Hlökkum til að sjá sem flesta.