Bleika slaufan

Gaman að segja frá því að Bókasafn Heiðarskóla er mikið nýtt í yndislestri og útlánum hefur fjölgað verulega undanfarin misseri. Í október var skemmtilegt verkefni í gangi hjá okkur á bókasafninu sem tengist bleiku slaufunni. Nemendur veittu athygli bókum um kvenkyns sögupersónur eftir kvenkyns rithöfunda, þeir sem vildu skráðu nafn sögupersónu og nafn höfundar á bleikan miða og röðuðu í bleika slaufu.