Breytt dagsetning á survivordegi

Þar sem veðurspáin er okkur ekki hagstæð fyrir morgundaginn höfum við fært survivordaginn til föstudags. Heimkeyrsla verður því hefðbundin á morgun en við keyrum heim klukkan 13:20 á föstudaginn.

Mikið var að gera hjá nemendum okkar í dag við að undirbúa survivordaginn. Nemendum í 1. - 7. bekk hefur verið skipt í aldursblandaða hópa og hver hópur fengið sinn lit. Krakkarnir eru að undirbúa búninga fyrir daginn, hvatningarstef og finna frumsaminn eða frumlegan leik sem þeir kynna svo hver fyrir öðrum á föstudaginn.