Fullveldishátíð 2017

Fullveldishátíðin var haldin hátíðleg 30.nóvember s.l. og börnin voru stolt þegar þau sýndu atriðin sín fyrir troðfullu húsi. Veitingarnar stóðu undir væntingum að vanda, heitt súkkulaði, vöfflur með rjóma og piparkökur. Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og stuðninginn við Nemendafélag Heiðarskóla. Í myndaalbúm eru komnar skemmtilegar myndir frá Fullveldishátíð.