Gleðilegt sumar - skólasetning 2015

Heiðarskóli verður settur föstudaginn 21. ágúst klukkan 16:00 í sal skólans. Næsta skólaár er 50. starfsár skólans og því stórafmæli framundan. Lítil starfsemi verður í skólahúsnæðinu frá og með 15. júní til 4. ágúst. Hægt er að senda tölvupóst á skólastjóra eða sviðsstjóra ef fólk á erindi við skólann yfir sumarmánuðina. Við vonum að nemendur okkar og fjölskyldur þeirra ásamt landsmönnum öllum eigi gleðilegt sumar.