Heiðarskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa

Heiðarskóli auglýsir eftir stuðningsfulltrúa í miðstigsteymi skólans. Leitað er að einstaklingi með góða hæfni í mannlegum samskiptum sem er reiðubúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við foreldra og samstarfsfólk.  

Um er að ræða 71% stöðu og vinnutími er frá kl. 8:00 – 13:30, fjóra daga í viku og 8:00 – 14:10, einn dag í viku. Um tímabundna ráðningu er að ræða frá 14. ágúst 2024 til 31. desember 2024. Hugsanlega möguleiki á áframhaldandi ráðningu.

Hæfniskröfur:

  • Reynsla af vinnu með börnum æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
  • Góð íslenskukunnátta

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525 eða 896 8158. Umsóknarfrestur er til og með 8. júlí n.k. og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað. Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.