Hljóðfærakynning

Við fengum góða gesti í heimsókn í dag. Skólahljómsveit Tónlistarskólans á Akranesi kom og spilaði fyrir okkur nokkur lög og kynnti í framhaldinu ýmis hljóðfæri. Virkilega skemmtilegt og nemendur Heiðarskóla hlustuðu af athygli og einhverjir fengu að prófa hljóðfærin í lok kynningar.