Íþróttadagur Heiðarskóla

Íþróttadagur Heiðarskóla var haldinn í dag. Keppt var í alls kyns íþróttum og allir fengu að taka þátt á sínum  forsendum. Hver og einn nemandi safnaði stigum bæði fyrir sig og bekkinn sinn. Á meðfylgjandi mynd má sjá stigahæsta nemanda hvers bekkjar. Að þessu sinni var það 10. bekkur sem hlaut titilinn stigahæsti bekkurinn 2025 og Eyrún Jóna Óladóttir í 10. bekk varð stigahæsti nemandi skólans.

Dagurinn var í alla staði vel heppnaður í ágætis veðri og ekki annað að sjá en allir væru að njóta.