Íþróttamót í Borgarnesi

Nemendur miðstigs fóru í Borgarnes í gær og tóku þátt í miðstigsmótinu ásamt fleiri skólum. Keppt var í 60 og 600 m. hlaupum, langstökki, kúluvarpi og knattspyrnu. Veður var með besta móti og aðstæður til íþróttaiðkunar voru frábærar á Skallagrímsvellinum. Krakkarnir skemmtu sér vel og gerðu sitt besta og dagurinn var búinn áður en við vissum af. Myndir frá mótinu eru í myndasafni.