Kartöflur

Í dag tóku nemendur okkar á yngsta stigi upp kartöflur úr kartöflugarðinum okkar sem var færður til í vor enda var fyrri garður farinn að gefa ansi lítið af sér. Börnin stóðu sig ótrúlega vel og voru mjög áhugasöm enda var uppskeran með eindæmum góð eins og sést á meðfylgjandi mynd, annað eins hefur ekki sést í Heiðarskóla svo lengi sem elstu starfsmenn muna.