Laus staða kennara í Leik- og grunnskóla Hvalfjarðarsveitar - Heiðarskóla

Heiðarskóli auglýsir eftir metnaðarfullum kennara sem er reiðubúinn að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra.

Um er að ræða: 

  • 70% stöðu list- og verkgreinakennara; textílmennt og heimilisfræði. Tímabundin ráðning frá 1. ágúst 2025 - 31. júlí 2026. 

Menntunar og hæfniskröfur  

  • Leyfisbréf til kennslu. 
  • Reynsla af teymiskennslu og fjölbreyttum kennsluháttum æskileg.  
  • Hæfni til að skipuleggja nám í fjölbreyttum nemendahópi þar sem allir fá að njóta sín á eigin forsendum.  
  • Lipurð í samskiptum, jákvæðni og sveigjanleiki í starfi. 
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu.  
  • Góð íslenskukunnátta.  

Nánari upplýsingar um starfið veitir Sigríður Lára Guðmundsdóttir skólastjóri í síma 433 8525. Umsóknarfrestur er til og með 27. maí og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra; sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. 

Leik- og grunnskóli Hvalfjarðarsveitar er starfræktur á tveimur starfsstöðvum í sveitarfélaginu, Heiðarskóli við Leirá við Skarðsheiði og Skýjaborg í Melahverfi. Gildi skólans eru vellíðan, virðing, metnaður og samvinna. Skólinn er grænfánaskóli og leggur áherslu á umhverfismennt og útinám. Unnið er með byrjendalæsi. Á leikskólasviðinu, Skýjaborg, dvelja um 40 börn á aldrinum 1-6 ára. Á grunnskólasviðinu, Heiðarskóla, eru um 90 nemendur í 1. – 10. bekk.