Laus störf við Heiðarskóla - umsjónarkennari og skólaliðar

 

Í skólanum er starfað með markvissum hætti í anda skóla fyrir alla og þannig lögð rík áhersla á að búa öllum nemendum aðstæður til náms við hæfi, nokkuð sem krefst sveigjanleika og skapandi hugsunar hjá öllu starfsfólki. Einkunnarorð skólans eru vellíðan, virðing, samvinna og metnaður. Í skólanum er starfað eftir hugmyndafræði uppbyggingarstefnunnar og byrjendalæsis. Skólinn er grænfánaskóli auk þess sem áhersla er lögð á spjaldtölvunotkun í námi, útinám og skapandi starf.

Við skólann er laus staða umsjónarkennara á yngsta stigi næsta skólaár. Um tímabundna ráðningu er að ræða frá 1. ágúst 2020 – 31. júlí 2021. Helstu verkefni og hæfniskröfur eru:

  • Annast almenna umsjónarkennslu í teymi með öðrum í 1. - 4. bekk.
  • Stuðla að velferð nemenda í góðu samstarfi við foreldra/forráðamenn.
  • Kennaramenntun og leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari.
  • Þekking á og reynsla af innleiðingu og notkun byrjendalæsis.
  • Reynsla af starfi með fjölbreyttum nemendahópi er kostur.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Áhugi á að ná fram því besta hjá hverjum nemanda.
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu. 

Við skólann eru lausar tvær stöður skólaliða, annars vegar 91% stöðuhlutfall og hins vegar 76% stöðuhlutfall. Ráðið verður í stöðurnar frá 14. ágúst 2020. Helstu verkefni og hæfniskröfur eru:

  • Ræsting á skólahúsnæði.
  • Gæsla og umönnun nemenda.
  • Lipurð í samskiptum og sveigjanleiki í starfi.
  • Reynsla af uppeldisstörfum.
  • Áhugi á að starfa í skólaumhverfi.
  • Færni í samvinnu og teymisvinnu.
  • Reynsla af ræstingu er æskileg.

Nánari upplýsingar um störfin má fá hjá skólastjóra, Sigríði Láru Guðmundsdóttur, í síma 433 8525 eða gsm 896 8158. Einnig má senda fyrirspurn á netfang skólastjóra: sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Umsóknarfrestur er til og með 29. maí næstkomandi og skal senda umsóknir ásamt starfsferilskrá í tölvupósti á netfang skólastjóra.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.