Lausar stöður stuðningsfulltrúa í Heiðarskóla

Tvær stöður stuðningsfulltrúa í hlutastörfum lausar til umsóknar

Um tímabundnar ráðningar stuðningsfulltrúa er að ræða á vorönn 2022. Störfin fela í sér stuðning innan námshópa í samstarfi við umsjónarteymi hópa. Við leitum að einstaklingum með færni í mannlegum samskiptum auk frumkvæðis og sjálfstæðis í vinnubrögðum. Reynsla af starfi með börnum er æskileg. Störfin henta jafnt konum sem körlum.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi SÍS og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um störfin má fá hjá skólastjóra, Sigríði Láru Guðmundsdóttur, í síma 896 8158 eða senda fyrirspurn á netfangið sigridur.gudmundsdottir@hvalfjardarsveit.is. Umsókn ásamt ferilskrá má senda á sama netfang. Umsóknarfrestur er til og með 21. desember 2021. Öllum umsóknum verður svarað.