Minnum á starfsdag og vetrarfrí næstu þrjá daga

Í dag sýndu nemendur og starfsfólk Heiðarskóla samstöðu í baráttunni gegn krabbameini og mættu í bleikum fötum í skólann.  Myndin sýnir unglingadeildina skarta bleiku og sumir buðu upp á bakkelsi að heiman til hátíðarbrigða.  Við minnum á starfsdag á morgun miðvikudag og á vetrarfrí fimmtudag og föstudag.  Kennsla hefst svo aftur mánudaginn 19. október nk.  Njótið vel!