- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Nemendur í 9. og 10. bekk héldu nýverið í skemmtilega og eftirminnilega ferð til Brighton á Englandi. Ferðin stóð yfir í fimm daga og var bæði fjölbreytt og vel heppnuð, með áherslu á samveru, upplifun og ævintýri.
Þegar ferðalaginu og innritun á hótelið lauk voru allir orðnir sársvangir eftir langan dag og við löbbuðum saman á skyndibitastaðinn Five guys. Þegar við vorum búin að næra okkur kíktum við niður á Brighton bryggjuna. Þar fengu nemendur að prófa fjölbreytta leiki og tæki, njóta sjávarútsýnis og kynnast breskum skemmtanaanda við sjóinn. Hlátur og fjör voru allsráðandi og var þetta frábær byrjun á ferðalaginu.
Næsta degi eyddum við í skógi rétt utan við Brighton, Little forest school. Þar naut hópurinn kyrrðarinnar, náttúrunnar og samverunnar í fallegu umhverfi. Þetta gaf nemendum tækifæri til að slaka á og styrkja tengsl sín hvert við annað utan hefðbundins skólaumhverfis. Kennararnir í skóginum leiðbeindu okkur í gegnum ýmiss skemmtileg verkefni eins og að búa til hálsmen úr aðföngum skógarins, mynd þrykkta úr blómum og plöntum, fengum að rannsaka ugluæl, kveikja eld og fleira. Einnig bauð landeigandinn Nick okkur í gönguferð um skóginn þar sem hann fræddi okkur um fugla, fiðrildi, tré og plöntur. Við borðuðum svo saman á ítalska veitingastaðnum Donatello um kvöldið. Yndislegur dagur í alla staði.
Miðvikudagurinn var frjáls dagur að mestu leiti. Þá fengu nemendur að ganga um miðbæinn, versla, skoða áhugaverða staði og upplifa mannlífið í þessari líflegu og sögufrægu strandborg. Um kvöldið borðuðum við saman afar ljúffengar pítsur á VIP Pizzeria.
Ferðin náði hámarki með heimsókn í Chessington World of Adventures, þar sem adrenalínið tók völdin. Þar skelltu nemendur sér í alls kyns rússíbana og skemmtitæki. Í garðinum gátu nemendur líka skoðað dýr af öllum stærðum og gerðum. Þessi ferð mun sennilega lifa lengi í minningum okkar allra. Á fimmtudagskvöldið máttu nemendur ráða hvar þeir borðuðu, margir kusu að eyða peningnum frekar í föt, snyrtivöru eða annað góss og borða “hræbilligan” skyndibita :-)
Ferðin heppnaðist afar vel og var mikil ánægja með hana meðal nemenda og kennara. Þegar heim var komið mátti sjá að það voru töluvert veraldarvanari unglingar sem stigu út úr rútunni – reynslunni ríkari og brosandi.