Öskudagur í Heiðarskóla

Í dag mættu alls kyns persónur og verur í skólann. Við gerðum okkur glaðan dag og nemendur sungu á söngstöðvum og fengu nammi eða vínber. Síðan var alls kyns afþreying í boði í heimastofum og eftir hádegið var haldin hæfileikakeppni. Á meðfylgjandi mynd má sjá nemendur skólans í lok dags.