Púðar í 5. - 10. bekk

Við námið sitja nemendur á vönduðum, sérhönnuðum skólastólum en sitt sýnist hverjum. Margir hafa kvartað yfir óþægindum við að sitja lengi á þessum stólum. Í dag var vonandi fundin lausn á þessu máli þegar nemendur fengu púða til að hafa í stólunum. Tveir af 6 fulltrúum Nemendafélags skólans voru sáttir við þetta eins og sjá má á myndinni sem fylgir fréttinni.