Skólabyrjun, innkaupalistar og skóladagatal

Þessa dagana er undirbúningur skólastarfsins í fullum gangi og starfsfólkið smátt og smátt að mæta til starfa eftir sumarleyfi. Skólasetning verður föstudaginn 21. ágúst klukkan 16:00. Innkaupalistar fyrir næsta skólaár eru aðgengilegir á heimasíðunni. Velja þarf Heiðarskóla hér fyrir ofan og þá má finna innkaupalistana hægra megin á síðunni. Bendum á að í 1. - 4. bekk er innheimt efnisgjald. Skóladagatal skólaársins 2015 - 2016 má líka finna með því að velja; Skólastarfið - Skóladagatal.