Skólasamstarfið

Í dag kom elsti árgangur Skýjaborgar í síðustu skólaheimsóknina í Heiðarskóla. Börnin fóru í íþróttir, á umhverfisfund með umhverfisnefnd Heiðarskóla og á bókasafnið. Börnin borðuðu líka hádegismat. Alls hittast börnin í leikskólanum og 1. bekk 16 sinnum yfir skólaárið, ýmist í Heiðarskóla eða Skýjaborg. Sameiginleg vettvangsferð verður farin á vordögum á Akranes. Elsti árgangur leikskólans kemur síðan í Vorskólann dagana 13., 18. og 20. maí.