Skólasamstarfið heldur áfram

Veðrið lék við tilvonandi 1. bekkinga í Heiðarskóla í dag. Börnin fóru í sund, hittu vini sína í 1. bekk, fóru í frímínútur og á bókasafnið, borðuðu tortillur í hádegismat og í dag tóku þau í fyrsta skipti þátt í hádegisfrímínútum. Dagurinn gekk vel og í myndaalbúm Heiðarskóla eru komnar myndir.