Skólaslit Heiðarskóla 2017

Skólaslit Heiðarskóla voru haldin með pompi og prakt þann 31. maí. Hápunktur dagsins var að sjálfsögðu útskrift 10. bekkinga. Að þessu sinni útskrifuðust 13 nemendur; Benjamín Mehic, Berglind Ýr Bjarkadóttir, Brimrún Eir Óðinsdóttir, Brynhildur Ósk Indriðadóttir, Eyþór Haraldsson, Hrönn Eyjólfsdóttir, Jóhanna Ingisól Sævarsdóttir, Jórunn Narcisa Gutierrez, Kristel Ýr Guðmundsdóttir, Markús Hrafn Hafsteinsson, Paulina Jolanta Latka, Stefán Ýmir Bjarnason og Valentínus Hauksson. Við færum þessum nemendum heilla- og hamingjuóskir, þeirra verður sárt saknað. Í myndaalbúm eru komnar myndir frá útskriftardeginum.