Skólastarf hefst aftur eftir páskafrí

Vonum að allir hafi notið sín í páskafríinu og mæti hressir og kátir í skólann á morgun en þá hefst skólastarfið aftur samkvæmt stundaskrá. Minnum líka á að keyrt verður heim klukkan 12:00 á miðvikudaginn vegna námskeiðs hjá starfsfólki skólans.