Stærðfræðikeppni FVA 2015

Skólahreystikeppnin 2015 - Logi Örn er fremstur á myndinni
Skólahreystikeppnin 2015 - Logi Örn er fremstur á myndinni

Stærðfræðikeppni FVA var haldin föstudaginn 13. mars sl. þar sem nemendur í efstu bekkjum grunnskóla Vesturlands tóku þátt. Logi Örn Axel Ingvarsson í 10. bekk keppti fyrir hönd Heiðarskóla og hafnaði  í  2. sæti í keppninni.  Laugardaginn 18. apríl sl. var athöfn á sal FVA þar sem afhent voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í hverjum árgangi.  Okkar maður Logi Örn er afreksmaður mikill og gat ekki verið við verðlaunaafhendinguna þar sem hann tók þátt í Íslandsmóti í hópfimleikum sama dag.  Á því móti vann Logi Örn  einnig til  verðlauna.  Við óskum Loga Erni innilega til hamingju með glæsilegan árangur og óskum honum alls hins besta í framtíðinni.

 Ljósmyndin er tekin á Skólahreystikeppninni 2015 og er Logi Örn fremstur á myndinni.