- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Undanfarna daga hefur verið mikið líf og fjör í SumarGaman sem að þessu sinni fór að mestu fram í Álfholtsskógi. Heiðarskóli þakkar Skógræktarfélagi Skilmannahrepps kærlega fyrir afnotin af Furuhlíð.
Börnin hafa verið dugleg að leika saman og gera alls konar, m.a. farið Borgarnes í sund og ísferð, nýtt dásamlega umhverfið í Álfholtsskógi og aðstöðuna í Furuhlíð í frjálsa eða skipulagða leiki, farið í sveitaferð að Háafelli þar sem þau fengu hrós fyrir að vera einstaklega góður og kurteis hópur og verið heilan dag í Skógræktinni á Akranesi.
Í dag var síðasti dagur SumarGaman í júní og til stóð að grilla hamborgara. Vegna rigningarinnar var ákveðið að panta pítsu fyrir hópinn og vakti það mikla lukku eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Börnin fengu svo ís í eftirrétt.
SumarGaman er frístundastarf á vegum Hvalfjarðarsveitar fyrir börn í 1. – 4. bekk í Heiðarskóla. Þetta sumarið eru það dagarnir 11. – 25. júní og 5. – 15. ágúst að undanskildum 14. ágúst.