Survivordagurinn

Í dag var Survivordagur skólans í Álfholtsskógi. Nemendur leystu alls kyns þrautir i skóginum fyrir hádegi og unnu sér þannig inn álegg á hamborgarana sem voru í hádegismatinn. Eftir hádegið spreyttu nemendur sig á því að hanna "foss" úr endurnýtanlegu efni. Mikill metnaður var ríkjandi og veðrið lék við okkur. Í myndaalbúm eru komnar nokkrar myndir og fleiri væntanlegar á morgun.