Tónleikar í Heiðarskóla

Tónlistarskólinn á Akranesi verður með nemendatónleika í Heiðarskóla föstudaginn 29. apríl klukkan 13:00. Nokkrir Heiðarskólanemendur sem stunda tónlistarnám í Tónlistarskólanum á Akranesi spila á hljóðfæri. Allir hjartanlega velkomnir.