Upplestararhátíð á miðstigi

Það var sannkölluð gæðalestrarstund í Heiðarskóla í gær þegar nemendur á miðstigi tóku annars vegar þátt í Litlu lestrarkeppninni í 5. og 6. bekk og undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk.

Nemendur á miðstigi hafa undanfarna mánuði æft sig í vönduðum upplestri og segja má að allir séu sigurvegarar og hafi tekið miklum framförum í upplestri. Það var sönn ánægja að hlýða á vandaðan upplestur barnanna.

Nemendur í 5. og 6. bekk tóku þátt á skólatíma en síðdegis var svo haldin undankeppni Stóru upplestrarkeppninnar í 7. bekk.

Allir lesarar sýndu þvílíkar framfarir og þriggja manna dómnefnd skipuð þeim Þórdísi Þórisdóttur, Helgu Harðardóttur og Sigrúnu Vigdísi Gylfadóttur hafði úr vöndu að ráða við val á fulltrúum fyrir lokahátíð samstarfsskólanna á Vesturlandi.

Börnin stóðu sig öll með stakri prýði og tóku miklum framförum í æfingaferlinu.

Fulltrúar Heiðarskóla sem taka þátt í lokahátíðinni eru þau Sara Margrét Ottesen, Ísabella Rós Pétursdóttir og til vara Valey Rún Birkisdóttir.

Stóra upplestrarkeppni samstarfsskólanna í 7. bekk fer fram nk. þriðjudag í Grunnskólanum í Borgarnesi kl. 14:00.

Við óskum öllum þátttakendum hjartanlega til hamingju með framfarirnar og þökkum fyrir dásamlegan upplestur.