Viðurkenning fyrir þátttöku í Stóru upplestrarhátíðinni

Í dag fengu nemendur okkar í 7. bekk viðurkenningarskjal  fyrir þátttöku í Stóru upplestrarhátíðinni en krakkarnir hafa æft í vetur vandaðan upplestur. Skemmst er frá því að segja að allir gerðu sitt besta og tóku miklum framförum. Til hamingju með frábæran árgangur krakkar. Þess má geta að María Björk og Ester Elfa kepptu fyrir hönd skólans í úrslitakeppninni á Vesturlandi. Þær stóðu sig með stakri prýði. María Björk lenti í 3. sæti af Vesturlandsskólunum - til hamingju María Björk.