Vorskóladögum lokið

Síðasti vorskóladagurinn var í gær. Börnin stóðu sig mjög vel enda orðin nokkuð skólavön eftir skólasamstarfið í vetur. Börnin ferðuðust til og frá skóla með skólabílunum og gekk það ljómandi vel. Þau fengu að kynnast fyrirkomulaginu í Heiðarskóla varðandi kennslustundir, stundatöflu og frímínútur. Þau fóru í íþróttir, sund, myndmennt og heimilisfræði ásamt því að vera með kennaranum sínum henni Katrínu Rós í fjölbreyttum verkefnum. Inn á myndasafnið eru komnar myndir.