Berjatínsla og leynistaður

Nú eru sólberin á flottu berjarunnunum okkar að verða tilbúin til átu. Elstu börnin fengu að hjálpa Hjöltu að týna þau og síðan gerði Hjalta dýrindis sólberjasultu úr þeim. Elsti hópur fór síðan í gönguferð að kíkja á nýja leynistaðinn sinn, þar vaxa dýrindis bláber og lúpína.