Dagur íslenskrar náttúru í leikskólanum

Á morgun, á Degi íslenskrar náttúru, munum við flagga Grænfánanum í þriðja sinn í leikskólanum. Athöfnin verður kl. 9:15 og ætla vinir okkar í 1. og 2. bekk að heimsækja okkur af því tilefni, en þau eiga auðvitað mikið í verkefninu með okkur. Allir velkomnir að taka þátt sem tök hafa á. Klukkan 10 fer Regnboginn í fjöruferð í Súlunes og munu dvelja þar fram yfir hádegi. Allir að koma klæddir eftir veðri.