- Fréttir
- Skólastarfið
- Starfsfólk
- Heiðarskóli
- Skýjaborg
- Foreldrar
- Menntastefna
Í dag er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins til að halda upp á það að þann 6. febrúar 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Á degi leikskólans er vakin sérstök athygli á því góða starfi sem unnið er í leikskólum og hvatt til jákvæðrar umræðu um leikskólann. Í Skýjaborg höldum við upp á daginn með því að opna sýningu á vinnu barnanna í stjórnsýsluhúsi Hvalfjarðarsveitar. Þar má sjá verk barnanna og skráningu á vinnu þeirra. Fjölbreytt verk eru til sýnis s.s. könnunarverkefni elstu barnanna um traktor og litaþema sem unnið var á yngri deildinni. Sýningin verður opin út febrúar og eru allir velkomnir að kíkja við.