Dagur náttúrunnar

Í dag, á degi náttúrunnar, fóru börnin í leikskólanum í góða gönguferð í Melahverfinu. Eldri börnin gengu stóran hring í kringum hverfið, gerðu jógaæfingar í hundraðekru skógi, dönsuðu Hókí Pókí, hlustuðu eftir álfum í Álfasteini og bjuggu til álfabörn úr steinum.  Yngri börnin fóru á fótboltavöllinn og léku sér þar. Veðrið lék við okkur í morgun og nutu sín allir í haustblíðunni.