Danssýning í leikskólanum

Í morgun var síðasti danstíminn okkar með Jóhönnu og buðum við foreldrum að koma og sjá afrakstur æfinga síðustu vikna. Börnin stóðu sig að sjálfsögðu með prýði og voru ótrúlega dugleg að læra alla þessa dansa á svo stuttum tíma. Gaman var að sjá hversu margir sáu sér fært að mæta á sýninguna. Takk fyrir komuna allir og sérstakar þakkir til Jóhönnu fyrir danskennsluna, börnin bíða spennt eftir næsta námskeiði. Myndir komnar á myndasíðuna.