Kveikt á jólatrénu við Stjórnsýsluhúsið

Í dag var leikskólanum boðið yfir í Stjórnsýsluhúsið að kveikja á ljósunum á jólatrénu þar fyrir utan. Safnast var saman í kringum jólatréð, kveikt á ljósunum og sungin nokkur jólalög. Eftir það var öllum boðið inn í fundarsal í Stjórnsýsluhúsinu þar sem jólatónlist var spiluð og okkur voru færðar mandarínur. Þetta er skemmtileg hefð fyrir jólin. Takk fyrir okkur.