Laus staða leikskólakennara / leiðbeinanda við Skýjaborg

Leikskólakennari/leiðbeinandi 100% staða 

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku og er afleysing í húsi fyrir styttingunni. 

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leyfisbréf til kennslu  
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta
  • Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu. 

Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi. Umsóknarfrestur er til 27. desember nk. og skal umsókn ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is. Umsækjandi þarf að geta hafið starf í janúar. Ef fjölgar börnum eða breytingar verða, er möguleiki á auknu starfshlutfalli. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.