Laus staða leikskólakennara/leiðbeinanda við Skýjaborg

 Leikskólakennari/leiðbeinandi óskast í 90% stöðu við leikskólann Skýjaborg

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku og er afleysing í húsi fyrir styttingunni.  

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leyfisbréf til kennslu  
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta
  • Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu.

 Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi. Umsókn ásamt starfsferilskrá skal skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is. Umsækjandi þarf að geta hafið starf strax. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.