Lausar stöður deildarstjóra við Skýjaborg

Skýjaborg auglýsir eftir metnaðarfullum kennurum sem eru reiðubúnir að leggja sig fram við að mæta þörfum allra barna í góðu samstarfi við samstarfsfólk og foreldra. Um framtíðarstörf er að ræða.  

Skýjaborg er tveggja deilda leikskóli í Melahverfi með allt að 40 börn. Í Skýjaborg gefst tækifæri til að takast á við fjölbreytt og skemmtileg verkefni sem tengjast þróun leikskólastarfs, samvinnu við Heiðarskóla og fleiri stofnanir. Hvalfjarðarsveit veitir starfsfólki sínu styrk til náms í leikskólakennarafræðum og leikskólaliðanámi. Í Skýjaborg er stytting vinnuvikunnar með 7 klst. vinnudag / 35 stunda vinnuviku og er afleysing í húsi fyrir styttingunni. 

Störf í boði: 

  • 100% staða deildarstjóra 
  • 100% staða deildarstjóra 

Ath. Önnur deildin er með börn á aldrinum 1-3 ára og hin deildin er með börn á aldrinum 3-6 ára. Deildarstjóri er ekki ráðin við aðra hvora deildina, heldur gæti starfið flust á milli deilda. 

Menntunar- og hæfniskröfur 

  • Leyfisbréf til kennslu  
  • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum æskileg 
  • Góðir skipulagshæfileikar 
  • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum 
  • Góð íslenskukunnátta
  • Ef ekki fást leikskólakennarar verður litið til menntunar og reynslu.

Nánari upplýsingar um starfið veitir leikskólastjóri, Eyrún Jóna Reynisdóttir, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfangi. Umsóknarfrestur er til 29. maí nk. og skal umsókn ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun@hvalfjardarsveit.is. Störfin eru frá 8. ágúst nk. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.