Leikskólastarfið

Nú eru flest börn og starfsfólk búin að skila sér aftur til okkar eftir sumarleyfi. Nokkrar breytingar hafa orðið hjá okkur í haust, bæði í barnahópnum og starfsmannahópnum.

Það fóru frá okkur 14 börn í sumar, sem eru að hefja grunnskólagöngu sína. Berglind Bergsdóttir, kennari, fylgir þeim í grunnskólann og verður kennarinn þeirra í 1. bekk. Árdís Hauksdóttir fór einnig til nýrra starfa við Heiðarskóla. Lára Böðvarsdóttir og Arndís Rós hættu í sumar. Við óskum þeim velfarnaðar í nýjum verkefnum.

Þau Guðný Kristín Guðnadóttir, Arnar Ólafsson og Hafdís Búadóttir komu ný inn í ágúst og bjóðum við þau velkomin til starfa.