Skýjaborgarval

Í dag og næstu föstudaga fáum við í heimsókn til okkar í leikskóla nemendur úr unglingadeild Heiðarskóla sem velja að koma í kynningu í leikskólann. Í dag eru þær Steinunn, Sigga og Elfa Dís hjá okkur og ætla að kynnast því sem við erum að gera. Börnin eru alsæl að fá unglingana til að leika með sér og eru viljug að sýna þeim og kenna á leikskólastarfið.