Smákökubakstur

Í morgun er búin að vera heilmikil smákökuframleiðsla hér í Skýjaborg og ilmar húsið nú af nýbökuðum smákökum. Börnin á Regnboganum gerðu piparkökur í mörgum stærðum og börnin á Dropanum gerðu súkkulaðibitakökur. Hér er sko fullt af flottum upprennandi bökurum. Börnin ætla svo að bjóða upp á afraksturinn í jólakaffi þann 6. desember.