Starfsmaður óskast í ræstingu við Leikskólann Skýjaborg

Laus er staða við ræstingar í leikskólanum Skýjaborg, Hvalfjarðarsveit.  Um er að ræða ræstingarstarf utan dagvinnutíma alla virka daga, 3,05 klst. á dag, vinnan fer fram á tímabilinu 16:30 – 20:00 eða eftir samkomulagi. 

  • Reynsla af vinnu við ræstingar æskileg. 
  • Hreinlæti í fyrirrúmi. 
  • Sjálfstæð vinnubrögð. 
  • Starfið hentar báðum kynjum.

Laun samkvæmt kjarasamningi SNS og viðkomandi stéttarfélags. 

Nánari upplýsingar má finna hjá leikskólastjóra, Eyrúnu Jónu Reynisdóttur, í síma 433 8530 / 892 5510 og á netfanginu eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is

Um framtíðarstarf er að ræða. Umsóknarfrestur er til og með 27. desember næstkomandi og skal umsóknum ásamt starfsferilskrá skilað í tölvupósti til leikskólastjóra á netfangið: eyrun.jona.reynisdottir@hvalfjardarsveit.is. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.